Sólheimar í Grímsnesi

Á Sólheimum er frábær aðstæða til ljósmyndakennslu. Á sumrin bjóðum við upp á verkleg grunnnámskeið að Sólheimum. 
Sólheimar eru sjálfbært samfélag þar sem rúmlega 100 einstaklingar búa og starfa saman. Sólheimar eru stofnaðir árið 1930 af Sesselju Hreindís Sigmundsdóttur (1902 - 1974).

Byggðahverfið Sólheimar leggur áherslu á ræktun manns og náttúru. Rekin er öflug félagsþjónusta á Sólheimum þar sem einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn er veitt tækifæri til atvinnu og starfsþjálfunar, búsetu, félags- og menningarstarfs.

Fjölbreytt starfsemi fer fram á Sólheimum svo sem rekstur skógræktar- og garðyrkjustöðva sem báðar stunda lífræna ræktun einnig er rekið bakarí og matvinnsla. Verslun og listhús, kaffihús og gistiheimili. Fjöldi listvinnustofa er á Sólheimum svo sem kertagerð, listasmiðja, keramik, vefstofa, jurtastofa og smíðastofa.

Í byggðahverfinu er kirkja, höggmyndagarður, trjásafn, hljómgarður, listsýningarsalur, umhverfissetrið Sesseljuhúsi auk íþróttaleikhúss.

Frekari upplýsingar um Sólheima  finnur þú á www.solheimar.is