Námskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum notendum á stafrænum myndavélum.
Miðað er við að myndavélarnar séu með mikla stillimöguleika.
Kennt er hvernig á einfaldan hátt er hægt að taka enn betri myndir og hvað þarf að gera til að ná hámarks gæðum úr myndavélinni.
Tilvalið námskeið fyrir þá sem vilja ná tökum á grunnatriðum ljósmyndunar.
Meðal annars er farið í:
Námskeiðið er 2 kvöld í kennslustofu frá 18:00 til 21:00 og síðan 20 mínútna einkatími á Zoom.
Í einkatímanum er farið yfir verkefnin og betur í þau atriði sem þátttakandi vill skoða.
Til að koma betur til móts við ólíkar þarfir þátttakenda ákváðum við að hafa bæði hóptíma og einkatíma.
ATH – Mikið er lagt upp úr því að sinna öllum þátttakendum vel og því er takmarkaður fjöldi þátttakenda á námskeiðinu.
Lágmarks fjöldi þátttakenda er 8.
Við stefnum á að vera með námskeið á dagskrá haustið 2024. Sendu okkur email hér ef þú vilt fá tilkynningar um næsta námskei.